Votlendi
Charlotte Roche

Votlendi

Fullt verð 2.990 kr 0 kr

„Ég rækta avókadótré. Það er eina áhugamálið mitt, fyrir utan kynlíf.“ Söguhetja þessarar umdeildu skáldsögu er hin 18 ára gamla Helen Memel. Þar sem hún liggur á sjúkrahúsi – eftir að hafa farið sér að voða við að raka sig á milli rasskinnanna – veltir hún fyrir sér ýmsum þáttum í líkamsstarfsemi kvenna sem sjaldan eru færðir í orð – svo og mögulegu hlutverki avókadókjarna í kynlífi.

Charlotte Roche (1978) hefur vakið gífurlega athygli fyrir þessa fyrstu skáldsögu sína, sem varð meiriháttar metsölubók þegar hún kom út árið 2008. Hún fjárfesti m.a. í slöngubát með utanborðsmótor fyrir höfundalaunin. Roche er ýmist kölluð kvenfrelsishetja eða ódýr klámhöfundur.

„Þetta er bersögul saga, oft sjokkerandi, en sömuleiðis bókmenntalegt afrek, minnir á rödd JD Salinger í Bjargvættinum í grasinu, úrkynjunina í Crash eftir JG Ballard og feminískan boðskap Germaine Greer í Kvengeldingnum.“ Vanity Fair

„Auk þess að vera pólitískt byltingaróp er bókin því einnig nístandi tjáning á sársauka.“
Þröstur Helgason, Víðjá, mars 2010 

ÞÝÐANDI: BJARNI JÓNSSON
Kápu hannaði Ásta S. Guðbjartsdóttir
Verð: 2.480
Prentuð hjá Odda

 


Fleiri bækur