Þeir sem fara og þeir sem fara hvergi
Elena Ferrante

Þeir sem fara og þeir sem fara hvergi

Fullt verð 2.500 kr 0 kr

Napólí-sögur Elenu Ferrante fara nú sannkallaða sigurför um heiminn. Þessi sagnabálkur, alls fjórar bækur, fjallar um vinkonurnar Lilu Cerullo og Elen
u Creco og flókna vináttu þeirra allt frá uppvextinum í einu af fátækari hverfum Napólí á sjötta áratugnum til fullorðinsára. Elena, sem segir söguna, fetar menntaveginn en Lila styttir sér leið um giftingu til fjár. Í bakgrunni eru hinar miklu þjóðfélagsbreytingar á seinni hluta 20. aldar sem hafa áhrif á líf þeirra og vina þeirra. Þetta eru sögur um djúpa vináttu og flóknar kenndir, umbreytingar, lífsviðhorf, æðruleysi og örvæntingu.

Þeir sem fara og þeir sem fara hvergi er þriðja bókin í þessum vinsæla bálki. Hér takast vinkonurnar á við fullorðinslífið og fara hvor í sína átt til að brjótast út úr fátækt og stöðnun; Lila sem fráskilin móðir en Elena fetar menntaveginn. Og þá reynir á hin sterku bönd sem tengja þær saman. Áður hafa komið út hjá Bjarti fyrri bækurnar tvær: Framúrskarandi vinkona og Saga af nýju ættarnafni.

Á bakvið höfundarnafnið Elena Ferrante er rithöfundur sem enginn veit hver er. Elena sagði ítölskum útgefanda sínum, bréflega, að bækurnar tali fyrir sig sjálfar og þurfi sín ekki lengur með.

Brynja Cortes Andrésdóttir þýddi úr ítölsku.

„Stór í sniðum, heillandi og skemmtilega mönnuð uppvaxtarsaga“
THE NEW YORKER

„Napólí-sögurnar eru hreint snilldarverk“
LOS ANGELES TIMES

„Ein blæbrigðaríkasta lýsing á vináttu tveggja kvenna sem ég hef nokkurn tíma lesið“
VOGUE


Fleiri bækur