Sannleikurinn um mál Harrys Quebert
Joël Dicker

Sannleikurinn um mál Harrys Quebert

Fullt verð 1.990 kr 0 kr

Fyrsta bók Marcusar Goldman skýtur honum upp á stjörnuhimininn. En hann á í basli með næstu bók, útgefandinn er orðinn óþolinmóður og hótar málssókn.

Marcus leitar ásjár hjá læriföður sínum, hinum þjóðþekkta rithöfundi Harry Quebert, sem skömmu síðar er sakaður um að hafa myrt Nolu Kellergan, unglingsstúlku sem hvarf sporlaust þrjátíu árum fyrr.

Marcus hefur eigin rannsókn á þessum gamla harmleik og smám saman afhjúpast flókið net ástarsambanda, leyndarmála og lyga. Málið tekur hvað eftir annað óvænta stefnu – áður en dramatískur sannleikurinn í máli Harrys Quebert er leiddur í ljós.

Sannleikur um mál Harrys Quebert eftir Joël Dicker (1985) er margverðlaunuð ástar- og glæpasaga. Hún kom út í Sviss og Frakklandi haustið 2012 og hefur farið sigurför um heiminn síðan.

Friðrik Rafnsson íslenskaði.


Fleiri bækur