Óboðinn gestur
Shari Lapena

Óboðinn gestur

Fullt verð 2.000 kr Tilboðsverð 3.999 kr

Af hverju ættirðu að flýja hamingjuríkt heimili þitt í ofboði?  Þú hlakkar til þess að ástkær eiginmaðurinn komi heim úr vinnunni á meðan þú eldar kvöldmatinn. Þetta er það síðasta sem þú manst.

Þú vaknar á sjúkrahúsi og hefur ekki hugmynd um hvernig þú endaðir þar. Þú segist hafa orðið völd að slysi eftir að hafa keyrt glannalega í hættulegasta hverfi bæjarins en þangað hefurðu aldrei komið áður. Lögreglan grunar þig um glæp. Eiginmaðurinn neitar að trúa því að þú hafir gert nokkuð rangt. Besta vinkona þín er ekki alveg eins viss. Og sjálf veistu ekki hverju þú átt að trúa.

Shari Lapena sló í gegn um allan heim með metsölubókinni Hjónin við hliðina. Óboðinn gestur er sálfræðitryllir í fremstu röð.

„Snjöll spennusaga með óvæntum snúningum ... Þétt, hugvitssamleg og gripandi.“ Heat

„Frábær spenna og ótal sviptingar.“ The Toronto Star

„Kemur manni hvað eftir annað í opna skjöldu.“ Jyllands-Posten

 


Fleiri bækur