Nickel-strákarnir
Colson Whitehead

Nickel-strákarnir

Fullt verð 3.500 kr 0 kr

Elwood Curtis er efnilegur piltur í Tallahassee í Florida-fylki sem verður innblásinn af ræðum dr. Martin Luther King. En í Bandaríkjum sjöunda áratugarins má drengur sem er dökkur á hörund alls ekki misstíga sig. 

Elwood lendir í hremmingum sem leiða til þess að hann er sendur í betrunarskóla fyrir ungmenni á villustigum, Nickel-skólann. Þar bíður harkaleg vist en sáluhjálp hans verður vinátta við Turner, sem finnst Elwood bláeygur úr hófi fram, veröldin sé flá og eina leiðin til að komast af sé lævísi, launráð og að forðast vandræði. Eftir því sem vistin í Nickel-skólanum verður háskalegri eykst spennan á milli hugsjóna Elwoods og tortryggni Turners og leiðir að lokum til afdrifaríkra ákvarðana. 

Nickel-strákarnir er byggð á sögu raunverulegs skóla sem var starfræktur í 111 ár og mótaði líf þúsunda barna. Colson Whitehead er einn rómaðasti rithöfundur Bandaríkjanna og hefur í tvígang fengið virtustu bókmenntaverðlaun sem þar eru veitt, Pulitzer-verðlaunin - í seinna skiptið árið 2020 fyrir Nickel-strákana.

Árni Óskarsson þýddi.

„Þetta er bók sem allir bókmennaunnendur verða að lesa.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni

„Ofboðslega grípandi ... frábær og ofsalega áhrifamikil.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljunni

Stórkostleg bók.“ Egill Helgason, Kiljunni

„Þetta er hrífandi og mikilvæg saga sem hreyfir við lesandanum og kallar fram tár hjá mörgum. Vonandi gerir hún lesendur líka bálreiða yfir því hvernig við mennirnir getum með andstyggilegum og óverjandi hætti níðst á og kvalið börn sem okkur er treyst fyrir.“  ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️  Einar Falur Ingólfsson,  Morgunblaðinu 

 

 


Fleiri bækur