Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga
Kristín Helga Gunnarsdóttir

Fíasól og furðusaga um krakka með kött í maga

Fullt verð 3.000 kr 0 kr

Sjá! Boða ég mikinn og frábæran fögnuð!

Fædd er nú stelpa kröftug og mögnuð!

Fíasól er fyrir löngu landsþekktur áhrifavaldur. Hér fara Kristín Helga og Halldór á Fíusólarflug í sprenghlægilegu kvæði sem fjallar um aðdragandann að fæðingu Fíusólar.

En undirtónninn er hyldjúpur og tilfinningaþrunginn þar sem Pippa, systir Fíusólar, glímir á sinn leikræna hátt við höfnun og óöryggi þegar tilkynnt er um fjölgun í Grænalundi í Grasabæ.


Er fákurinn kemur þá fæ ég stíu!

Og fuglinn verður í búri nýju.

Kötturinn sérvitri heimtar humar

og hagamýsnar fá þrekhjól í sumar.

 

„Sprenghlægileg ljóðsaga sem getur einnig verið lærdómsrík fyrir unga lesendur.“ Ragnhildur Þrastardóttir, Morgunblaðinu

„Ofsalega skemmtileg og falleg saga. Myndirnar glæða textann verulegu lífi.“ Aðalbjörg Bragadóttir, N4

 

„Hin íslenska Lína langsokkur!“ Dómnefnd um Fjöruverðlaunin 2019

 

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

Þorgerður Anna Gunnarsdóttir, Morgunblaðinu um Fíasól gefst aldrei upp


Fleiri bækur