Eitthvað á stærð við alheiminn
Eitthvað á stærð við alheiminn
Jón Kalman Stefánsson

Eitthvað á stærð við alheiminn

Fullt verð 1.990 kr 0 kr

Útgáfudagur: 21.10.2015

Tíminn líður ekki í eilífðinni, þar verður tillitslaust afl hans að engu.

Hér lýkur ættarsögunni sem hefst í bókinni Fiskarnir hafa enga fætur (2013) og teygir sig frá Norðfirði forðum til Keflavíkur dagsins í dag, með viðkomu á Miðnesheiðinni. Hér er sagt frá ástinni, sem er í senn fórn og jafnvægislist, frá lífi og dauða, krepptum hnefa, Elvis Presley sem kann að opna hjörtun og stjörnum himinsins sem hverfa í eldi sólarinnar. 

TILNEFND TIL ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA


Fleiri bækur