Brynhildur Georgía Björnsson
Ragnhildur Thorlacius

Brynhildur Georgía Björnsson

Fullt verð 1.990 kr 0 kr

Fimmtug flúði hún Ísafjörð og sitt fjórða hjónaband. Hún fór til Þýskalands til þess að deyja. Viku síðar var Brynhildur Georgía komin á fast með 16 árum yngri manni.

Hildí var fædd í hálfgerðum felum. Hún var barn ungra ógiftra foreldra og barnabarn fyrstu forsetahjóna Íslands. Hún ólst upp í stríðshrjáðu Þýskalandi, hernuminni Danmörku og á Bessastöðum.

Hún seldi þvottasnúrur í Argentínu, sótti sjóinn frá Suðurnesjum, hlýddi á óperur og bakaði baguette við Ísafjarðardjúp. Hún missti tvö börn, átti fimm menn og eyddi sautján síðustu árum ævi sinnar rúmföst í bílskúr í Reykjavík.

Ragnhildur Thorlacius fréttamaður studdist við fjölmargar heimildir við ritun ævisögu Brynhildar Georgíu, þar á meðal einkabréf sem aldrei hefur verið vitnað til, ásamt því að ræða við fjölskyldu og vini þessarar óvenjulegu konu.