Fávís mær
Ida Simons

Fávís mær

Fullt verð 1.999 kr 0 kr

Hin tólf ára gamla Gittel býr með foreldrum sínum í Haag en hjónaband þeirra er ekkert sérlega farsælt. Alltaf þegar móðir hennar fær nóg rjúka þær mæðgur til ættingja í Antwerpen. Þar kynnist hin unga Gittel Mardell-fjölskyldunni sem leyfir henni að æfa sig á Steinway-flygilinn. Hún vingast við hina þrítugu heimasætu, Lucie, en kynnist svo í fyrsta sinn svikum og prettum.

Þetta er mögnuð lýsing á tíðaranda millistríðsáranna. Í sakleysislegri sögunni er margt ósagt, sem þó lifnar við í huga lesandans.

Bókin kom fyrst út árið 1959 en nýverið uppgötvuðu útgefendur um allan heim þessa heillandi sögu og kemur hún nú út á fjölda tungumála. Jóna Dóra Óskarsdóttir þýddi úr hollensku.

 

„Jane Austen Antwerpen.“ – Trouw

 „Sannkallaður gálgahúmor og hreinræktuð frásagnargleði.“ – Dagens Næringsliv


Fleiri bækur