Í hennar skóm
Jojo Moyes

Í hennar skóm

Fullt verð 3.950 kr 0 kr

Sam dreymir um annað líf, þar sem hún er laus við peningaáhyggjur og þunglyndan eiginmann. Einn morguninn tekur hún óvart vitlausa tösku heim úr ræktinni og í henni reynist vera Chanel-jakki og rándýrir hönnunarskór. Þegar hún freistast til að klæða sig í skóna finnst henni hún vera orðin allt önnur kona.

Nisha á töskuna. Líf hennar virðist fullkomið, en daginn sem hún glatar töskunni hendir vellauðugur eiginmaður hennar henni á dyr og lokar bankareikningum hennar. Allt er hrunið, hún er ein á báti með tösku ókunnugrar konu og gamla skó.

En engin kona er eyland. Jafnvel konan sem var að eyðileggja líf þitt gæti reynst þín stoð og stytta. Því að saman getið þið gert hvað sem er.

„Ég skemmti mér stórvel við lesturinn!“ Silja Aðalsteinsdóttir

„Heillandi metsölubók. Um leið og þú stígur inn í líf Sam og Nishu muntu spæna í gegnum síðurnar. Eftirminnileg og hrífandi.“ —DAILY EXPRESS

„Hlý, fyndin og upplífgandi skáldsaga ... Það er unun að verja tíma með persónum Jojo Moyes sem eru svo viðkunnanlegir gallagripir.“ —SUNDAY EXPRESS

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️ —VERDENS GANG

„Dekraðu við þig með að lesa nýjustu bók drottningar breskra kvennabókmennta.“ —PEOPLE


Fleiri bækur