Jórunn Viðar – ævisaga
Jórunn Viðar var fyrsta íslenska konan sem sótti háskólamenntun í tónsmíðum, hún braut blað sem tónskáld og átti glæstan feril sem píanóleikari. Þó var henni margt mótdrægt. Viðtökur á verkum hennar lituðust oft af því að hún var kona og í hjónabandinu fann hún sjaldan þá hvatningu eða skilning sem hefði getað fleytt henni lengra á listabrautinni.
Jórunn Viðar var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi á 20. öld. Hér er saga hennar sögð í fyrsta sinn og byggir Árni Heimir Ingólfsson verkið að miklum hluta á óprentuðum gögnum sem aldrei hefur verið vitnað til áður, meðal annars fjölda sendibréfa. Fjallað er um æskuárin í Reykjavík, námsár í Berlín rétt fyrir síðari heimsstyrjöld og í New York á stríðsárunum og þá glímu sem við tók eftir að heim til Íslands var komið. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem hvergi hafa birst opinberlega.
Árni Heimir Ingólfsson er tónlistarfræðingur og píanóleikari. Hann hefur þrívegis verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir verk sín og sömuleiðis í þrígang verið tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis.
Jórunn Viðar – ævisaga er tímamótaverk um eina af merkustu tónlistarkonum Íslands á 20. öld.
„Árni Heimir Ingólfsson hefur skrifað ævisögu Jórunnar Viðar píanóleikara og tónskálds af mikilli list og svo lipurlega að það er hrein unun að lesa. … Árni Heimir hefur skrifað einstaklega fróðlega og aðgengilega bók. Þótt hér sé ferill Jórunnar og listsköpun í forgrunni er þetta ekki eingöngu ævisaga tónskálds heldur einnig saga konu, tónlistarlífs á Íslandi og tíðaranda langt fram eftir tuttugustu öld. Bókin er sérlega vel unnin og allir geta notið þess að lesa hana því hún er ekki síður persónlýsing og Jórunn er heillandi manneskja. Árni Heimir á þakkir skildar fyrir að hafa ráðist í þetta verk og þetta er frábær ævisaga.“ Steingerður Steinarsdótitr, Lifðu núna