Árni Heimir Ingólfsson
Árni Heimir Ingólfsson er tónlistarfræðingur og píanóleikari. Hann hefur gefið út fjölda bóka og greina um íslenska tónlistarsögu, allt frá miðöldum til samtímans.
Hann hefur þrívegis verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir verk sín, fyrst árið 2009 fyrir Jón Leifs – Líf í tónum en ensk útgáfa hennar, Jón Leifs and the Musical Invention of Iceland, var valin ein af bestu tónlistarbókum ársins af Alex Ross, gagnrýnanda The New Yorker.
Saga tónlistarinnar var tilnefnd til bókmenntaverðlaunanna árið 2016 og Tónar útlaganna – Þrír landflótta tónlistarmenn sem mótuðu íslenskt menningarlíf árið 2024.
Þá hefur hann þrívegis verið tilnefndur til Viðurkenningar Hagþenkis.
Árni Heimir hefur einnig komið fram víða um heim sem tónlistarflytjandi og hlaut hann ásamt Kammerkórnum Carmina tvívegis Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir hljóðritanir á söngvum úr íslenskum handritum fyrri alda.