Talin af
Sara Blædel

Talin af

Fullt verð 2.990 kr 0 kr

Húsmóðir í Englandi er skotin til bana með riffli í gegnum eldhúsgluggann. Í ljós kemur að konan var dönsk og hvarf sporlaust átján árum fyrr. Enska lögreglan kemst að því að hópur Dana hefur lagt umtalsverða fjármuni inn á reikning konunnar og leitar á náðir Louise Rick hjá mannhvarfsdeild lögreglunnar í Kaupmannahöfn. Þar með tekur málið óvænta stefnu, jafnframt því sem samband Louise og Eiks, unnusta hennar og samstarfsmanns, lendir í miklum ólgusjó.

Sara Blædel er einn vinsælasti gllæpasagnahöfundur samtímans. Bækur hennar um Louise Rick hafa notið gríðarlegra vinsælda og selst í milljónum eintaka um allan heim.

,,Grípur mann heljar tökum.“ – Toronto Star

,,Sara Blædel kann sitt fag og spinnur hér frábæra fléttu.“ – Weekendavisen

„Sagan fer með okkur inn á hið gráa svæði þar sem samúð getur orðið að glæp og góðvild leitt til kaldrifjaðs morð.“ ― New York Times Book Review

*****
Nordjyske Stiftstidende


Fleiri bækur