Herra Hnetusmjör: Hingað til
Sóli Hólm

Herra Hnetusmjör: Hingað til

Fullt verð 3.500 kr 0 kr

Herra Hnetusmjör – Árni Páll Árnason – hefur verið eins og hvirfilbylur í íslensku tónlistarlífi á undanförnum árum. Lögum hans er streymt í milljónum skipta á tónlistarveitum og framganga hans á tónleikum hefur vakið mikla athygli og aðdáun.


En hver er maðurinn á bak við dökku sólgleraugun? Lífsganga hans hefur verið skrykkjótt og sannkölluð rússibanareið: Hamingjurík æska í Hveragerði. Spenna og togstreita unglingsáranna í Kópavogi. Íslenska rappið og leiðin á toppinn. Freistingar dópsins. Skuggahliðar Reykjavíkur. Að falla til botns í neyslu og óreglu og spyrna sér þaðan á ný til hamingjuríks fjölskyldulífs.

Sóli Hólm skrifar Herra Hnetusmjör – hingað til. Hann keyrir frásögnina áfram af blússandi krafti en sýnir líka strákinn á bak við ímyndina í einlægri og stórskemmtilegri bók sem sætir tíðindum.

Bókin rennur alveg ferlega vel ... þetta er djúsí, það vantar ekkert uppá það.“ Jakob Bjarnar Grétarsson, Vísir.is


Fleiri bækur