Guðrún Ögmundsdóttir – Hjartað ræður för
Guðrún Ögmundsdóttir, Halla Gunnarsdóttir

Guðrún Ögmundsdóttir – Hjartað ræður för

Fullt verð 2.490 kr 0 kr

Guðrún Ögmundsdóttir á að baki litríka og dramatíska ævi; dóttir konu sem „fór heim án barns“ af fæðingardeildinni og ólst upp hjá kjörforeldrum, tók síðan sjálf barn í fóstur. Hún er holdgervingur ’68 kynslóðarinnar og fyrrverandi borgarfulltrúi og alþingismaður.

Guðrún sogaðist inn í hringiðu nýrra hugmynda á áttunda áratugnum – m.a. í Kaupmannahöfn, þar sem hún dvaldist lengi – en fann sína fjöl í kvenréttindabaráttunni, fyrst með rauðsokkum og síðar Kvennalistanum og sat í borgarstjórn fyrir hann. Hún var meðal stofnenda Samfylkingarinnar og sat á þingi fyrir flokkinn.

Halla Gunnarsdóttir skrifar sögu Guðrúnar Ögmundsdóttur. Þetta er í senn saga stórhuga konu sem lætur sér ekkert fyrir brjósti brenna, saga kynslóðarinnar sem óx úr grasi eftir síðari heimsstyrjöld – og baráttusaga íslenskra kvenna á ofanverðri 20. öld. Útkoman er heillandi ævisaga, fyndin, sorgleg og bitastæð – en umfram allt sultufín! 

Guðrún Ögmundsdóttir – Hjartað ræður för er 257 blaðsíður að lengd, auk sérstakra myndaarka. Helgi Hilmarsson braut bókina um og Dynamo hannaði kápuna. Bókin er prentuð í Odda.

 


Fleiri bækur