Völundarhús tækifæranna
Árelía Eydís Guðmundsdóttir og Herdís Pála Pálsdóttir

Völundarhús tækifæranna

Fullt verð 4.000 kr 0 kr

Þær miklu tæknilegu umbreytingar sem nú þegar eru farnar að hafa áhrif á daglegt líf okkar munu veita fólki á vinnumarkaði sem og atvinnurekendum ný og spennandi tækifæri. Þessi umbylting getur orðið lykill að betra og innihaldsríkara lífi. 

Hinum svokölluðu giggurum fer stöðugt fjölgandi – fólki sem tekur að sér verkefni í takmarkaðan tíma en hverfur svo á vit nýrra viðfangsefna; fólki sem selur vinnu sína á markaðstorgi þekkingarinnar. Eðli starfa og vinnustaða er að gjörbreytast og samband starfsfólks og vinnustaðar mun verða með allt öðrum hætti en áður.

Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir er dósent við HÍ og hefur sérhæft sig í vinnumarkaðsmálum. Herdís Pála Pálsdóttir er framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og mannauðsstjóri hjá Deloitte. Í námi og starfi hefur hún aðallega sérhæft sig í mannauðsmálum og rekstri.

Í þessari ómissandi bók fjalla Árelía Eydís og Herdís Pála um það hvaða áhrif breytingarnar munu hafa á vinnumarkað framtíðarinnar, giggara og aðra – og hvernig best er að fóta sig í völundarhúsi tækifæranna.

„Frábær handbók fyrir alla þá sem vilja breyta til eða auka möguleika sína á vinnumarkaði.“ Steingerður Steinarsdóttir, Vikunni

„Frábær bók um möguleikana á vinnumarkaði framtíðarinnar. Ekki síst fyrir þau sem langar að búa til nýjar leiðir frekar en þramma gamlar.“ Jón Gnarr, giggari og fyrrverandi borgarstjóri

„Bókin hentar öllum þeim sem áhuga hafa á því að taka stjórnina í eigin lífi, líðan, starfi og framtíð.“ Sigrún Kjartansdóttir, formaður Mannauðsstjórnunarfélagsins

 


Fleiri bækur