
Guðmundur Steingrímsson
Fegurðin ein
Fullt verð
3.500 kr
Tilboðsverð
6.000 kr
Síðasta sýningin á söngleiknum um Fríðu og Dýrið. Anna dansari er í stuði í lokapartíinu – þar til bæði kærastinn og viðhaldið eru mættir. Hún tekur þess vegna fagnandi óvenjulegu verkefni fyrir auglýsingastofu: að fara til Tenerife og finna fallegt fólk – en samt venjulegt fólk – til að birtast í auglýsingum um sólarlandaferðir. Enda kærkomið að losna frá flóknum kærastamálum og sóla sig aðeins í leiðinni. En hvað er fallegt? Verkefnið reynist snúnara en hún hugði og stutta vinnu- og hvíldarferðin vindur heldur betur upp á sig.