Dulmál Katharinu
Jørn Lier Horst

Dulmál Katharinu

Fullt verð 3.500 kr 0 kr

Katharina Haugen hvarf fyrir 24 árum. Hið eina sem hún skildi eftir sig var eiginmaðurinn Martin og undarleg talnaruna á blaðsnifsi

Hinn 9. október ár hvert tekur William Wisting lögregluforingi fram gögnin í þessu máli sem hann gat ekki leyst. Starir á talnakóðann sem hann fékk aldrei botn í. Og heimsækir eiginmanninn sem hann gat ekki hjálpað. Þetta ár er öðruvísi. Nú er önnur kona horfin. Og líka eiginmaður Katharinu. William Wisting verður að finna Martin, en er hann að reyna að bjarga kærum vini eða kaldrifjuðum morðingja?

Glæpasögur Jørn Lier Horst njóta gríðarlegrar hylli um allan heim. Hann er margverðlaunaður og hefur meðal annars hlotið Glerlykilinn fyrir bestu norrænu glæpasöguna.

Innsýn Jørn Lier Horst í störf lögreglunnar lyftir bókum hans hátt yfir aðrar glæpasögur.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️ Dagbladet, Noregi

Jørn Lier Horst er einn snjallasti glæpasagnahöfundur vorra tíma.“ Joan Smith, Sunday Times

Einn albesti norræni glæpasagnahöfundurinn.“ Marcel Berlin, The Times

Bækur Jørn Lier Horst eru meðal þess sem best gerist í norrænum glæpasögum. Sögurnar eru frábærlega fléttaðar og persónurnar dásamlega raunverulegar.“ Yrsa Sigurðardóttir


Fleiri bækur