
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Rúna – Örlagasaga
Fullt verð
3.990 kr
Engin íslensk kona hefur unnið jafn glæsta sigra á hestbaki heima og erlendis og Rúna Einarsdóttir – og hún kynnti Orra frá Þúfu til sögunnar, frægasta kynbótahest Íslands. Rúna lifði í vellystingum á glæsilegum hestabúgarði í Þýskalandi og ekkert lát virtist vera á velgengninni. En hér segir ekki einungis frá sigrum Rúnu heldur líka konunni á bak við glansmyndina, einsemd hennar og sorgum, konunni sem á tímabili fannst eins og öll sund væru lokuð.
Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar af alkunnu innsæi og snilld örlagasögu stúlkunnar sem ólst upp í fásinni og náttúrufegurð í Svínadal í Húnavatnssýslu, konunnar sem náði hæstu hæðum glæsilífs – en líka dýpstu dölum tilverunnar.