Móðurlífið, blönduð tækni
Yrsa Þöll Gylfadóttir

Móðurlífið, blönduð tækni

Fullt verð 2.999 kr 0 kr

Sirrí var róttækur framúrstefnulistamaður á síðari hluta 20. aldar, sem lést fyrir aldur fram. Sirrí var ekki einungis umdeild sem listamaður, heldur einnig fyrir líferni sitt, ekki síst eftir að hún yfirgaf ung börn sín til að sinna listinni.

Þegar dóttir hennar, Kamilla, felst á að liðsinna Listasafni Reykjavíkur við undirbúning yfirlitssýningar um móður hennar, lendir hún í vanda, því ekki hefur gróið um heilt í fjölskyldunni og ekki minnkar hugarangistin þegar bréf Sirríar til elskhuga hennar koma í leitirnar. Hvers konar mynd mun þjóðin fá af henni? Á einkalíf listamanns erindi við aðra? Á sannleikurinn erindi á sýninguna?

Yrsa Þöll Gylfadóttir hefur hér skrifað spennandi og áhrifamikla sögu um siðferðileg álitamál tengd listinni og lífinu, um skyldur foreldra við börn, um erfingja og ábyrgð þeirra – og hvað frjalsleg umgengni við sannleikann getur haft í för með sér.


Fleiri bækur