Vængjaþytur vonarinnar
Margrét Dagmar Ericsdóttir

Vængjaþytur vonarinnar

Fullt verð 3.500 kr Tilboðsverð 6.500 kr

Þeim hafði verið sagt að ungur sonur þeirra myndi aðeins ná þroska tveggja ára barns og líklega aldrei læra að ganga. Þau fengu lítinn sem engan svefn í nokkur ár út af óþekktri vanlíðan hans. Heilbrigðiskerfið veitti fá svör. Hann dó tvisvar í höndunum á þeim. Þau hjónin voru að sigla hvort í sína áttina.  Það geisaði stanslaust ofsaveður í lífi fimm manna fjölskyldu. En Margrét Dagmar Ericsdóttir neitaði að gefast upp.

Með óbilandi kjarki, jákvæðni og þrautseigju tókst Margrét á við hið ómögulega og reri lífróður fyrir soninn – og fjölskylduna alla – þar sem engin fórn var of mikil. 

Margrét lýsir á áhrifamikinn hátt glímu fjölskyldunnar við erfiðleika sem virtust óyfirstíganlegir, hún lýsir beint frá hjartanu sársaukanum og sorginni en líka gleðinni og sigrunum – og því hvernig vængjaþytur vonarinnar hvarf henni aldrei. 

„Þú breyttir lífi mínu. Saga þín eflir mig sem móður og manneskju. Þakka þér fyrir að hjálpa mér að þroskast. Það ert þú sem hefur töfrana. Þú kennir mér svo margt á hverjum degi.“ – Kate Winslet um sögu Margrétar

„Hetjusagan um Margréti; konuna sem barðist fyrir son sinn; opnaði dyr sem allir töldu lokaðar; saga sem snart hjarta mitt; mögnuð og hrífandi. Lestur bókarinnar  gerir okkur að betri manneskjum.“ Dorrit Moussaieff um sögu Margrétar

 

 

 

 

 

 


Fleiri bækur