Tvísaga – móðir, dóttir, feður
Ásdís Halla Bragadóttir

Tvísaga – móðir, dóttir, feður

Fullt verð 3.990 kr 0 kr

Þótt ég ég grátbæði hana var ég ekki viss um að mamma segði mér sannleikann um hver raunverulegur faðir minn væri. En hvort sem henni líkaði betur eða verr þá var kominn tími til að feluleiknum lyki eftir áratuga þögn.

 

Fjölskyldusaga Ásdísar Höllu Bragadóttur er í meira lagi dramtísk. Hér segir frá ungri, einstæðri móður í Höfðaborginni í baráttu við barnaverndarnefnd, bræðrum sem sendir eru í fóstur á Silungapoll og bíða þess aldrei bætur. Við sögu koma líka unglingsstúlka sem smyglar læknadópi inn á Litla Hraun, menn sem hún heldur að séu feður hennar, amma og stjúpafi sem búa í torfkofa uppi á Hellisheiði, berfætt telpa sem stendur ein undir vegg í snjó og myrkri og kona sem verður tvísaga.

 

Vel skrifuð, opinská og einlæg frásögn þar sem Ásdís Halla Bragadóttir segir einstaka sögu móður sinnar – og þeirra mæðgna. Saga þeirra er full af gleði en líka djúpum harmi, vonum og vonbrigðum og sannleika sem aldrei er einhlítur. Tvísaga er bók sem kemur á óvart og lætur engan ósnortinn.

Eyjólfur Jónsson braut bókina um en Jón Ásgeir Hreinsson hannaði kápu.

„Ásdís Halla Bragadóttir hefur skrifað ævisögu sem kannski er einsdæmi í íslenskum bókmenntum … Þar tekst hún á við sögu móður sinnar, fjölskyldu sinnar og um leið sína eigin sögu af miklum heiðarleika og skilar sterkri sögu úr íslenskri nærfortíð, sem á köflum fær lesandann til að grípa andann á lofti og velta því fyrir sér hvers konar þjóðfélag þetta sé sem við búum í. … Vel unnin, vel skrifuð og firnasterk saga sem spilar á alla tilfinningastrengi lesenda.“ **** Friðrika Benónýs, Fréttablaðinu

„Hugrekki er það sem stendur upp úr, hugrekki Ásdísar Höllu og móður hennar, að deila erfiðri sögu sorgar, harms, kærleika, ástar og átaka. Þær draga ekkert undan, eru berskjaldaðar og sannar í sinni frásögn.“ Þórey Vilhjálmsdóttir, Smartlandi á mbl.is

„Sláandi, merkileg og frábærlega skrifuð … snertir mann.“ Gísli Marteinn Baldursson


Fleiri bækur