Þrútið var loft og þungur sjór eftir Steinar J. Lúðvíksson er afar fróðleg og áhugaverð bók um sjóskaða við strendur Íslands. Hér segir frá skipbrotsmönnum hringinn í kringum landið fyrr á tíð, giftusamlegum björgunum, hörmulegum mannsköðum, gjörningaveðrum, feigð og baráttu við landhelgisbrjóta.
 
                
        
          Steinar J. Lúðvíksson
        
        
          
          
          
          
              
 
 
            
          
          
        
      
    Þrútið var loft og þungur sjór
            Fullt verð
            
              4.000 kr
            
            
              Tilboðsverð
              
                7.000 kr
              
            
          
          
          
            Þá fjallar Steinar ýtarlega um hákarlaveiðar sem stundaðar voru við erfiðar aðstæður á vanbúnum bátum í illum veðrum en Grænlandshákarlinn getur orðið allt að sjö metra langur. Steinar J. Lúðvíksson er kunnastur fyrir stórvirki sitt, Þrautgóðir á raunastund, sem kom út í nítján bindum og naut fádæma vinsælda. Hér hefur hann tekið saman einstakar frásagnir af hetjum hafsins – frásagnir sem öðlast nýtt líf í meðförum hans.
„Með sinni einstöku frásagnargáfu dregur [Steinar] upp lifandi myndir af hetjum hafsins og því hvernig náttúran hefur alla tíð sett íslensku þjóðinni mörk. ... bók fyrir alla sem hafa áhuga á hetjum hafsins og óttanum sem fylgir því að horfast í augu við náttúruöflin.“ Jana Hjörvar, Lestrarklefinn
 
                   
               
               
              