Þorpið
Ragnar Jónasson

Þorpið

Fullt verð 2.300 kr Tilboðsverð 3.400 kr

Una, ungur kennari úr Reykjavík, ræður sig til starfa á Skálum á Langanesi árið 1985. Íbúarnir eru tíu og nemendurnir aðeins tveir. Samfélagið er lokað og tekur henni með miklum fyrirvara – eins og allir hafi eitthvað að fela.

Óútskýrð dauðsföll vekja ugg, Unu finnst sér ógnað og á nóttunni er stundum eins og hún sé ekki ein í herberginu sínu ...

Ragnar Jónasson er einn fremsti spennusagnahöfundur þjóðar­innar. Bækur hans hafa komið út um allan heim og setið efst á metsölulistum. Hér sýnir hann allar sínar bestu hliðar í glæpa­sögu sem fær hárin til að rísa.

„Ef eitthvað mjög óvænt gerist í glæpasögu tala ég við sjálfa mig og þarna sagði ég bara ha?! hvað er þetta?!“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni

„Erfitt að leggja bókina frá sér.“ Jóhann Ólafsson, Morgunblaðinu

„Frábærlega vel byggð bók … kom mér alveg á óvart í lokin.“ Sigurður G. Valgeirsson, Kiljunni


Fleiri bækur