Friðrik Erlingsson

Þór – Leyndarmál guðanna

Fullt verð 2.990 kr 0 kr

Þór Óðinsson þeytist um heiminn frá morgni til kvölds að sinna skyldum sínum við guði og menn, í von um að faðir hans vígi hann endanlega inn í goðheima. Gömlu guðirnir eru hins vegar fullir öfundar yfir vinsældum Þórs og reyna að losa sig við hann.

Af stað fer æsispennandi atburðarás þar sem hin illu öfl notfæra sér veikleika Þórs og fyrr en varir er allt líf í mannheimum og goðheimum í uppnámi. Loki vill tortíma Þór með aðstoð jötna og fær óvæntan liðsauka þegar sjálfur Surtur, lávarður logans, telur sig eiga harma að hefna gegn hinum hálfmennska guði. Þór þarf að kljást við öfluga og næstum ósigrandi óvini – og um leið sjálfan sig og breyskleika sinn.
Friðrik Erlingsson sló eftirminnilega í gegn með margverðlaunaðri sögu sinni Benajmín dúfu. Bók hans Þór í heljargreipum hlaut frábærar viðtökur en sú saga byggist á alþjóðlegri teiknimynd sem íslenska teiknimyndafyrirtækið CAOZ framleiðir.


Fleiri bækur