![Mínímalískur lífsstíll - Það munar um minna](http://bjartur-verold.is/cdn/shop/products/Mi_CC_81ni_CC_81mali_CC_81skur-li_CC_81fssti_CC_81ll-120x180_{width}x.jpg?v=1529185589)
Mínímalískur lífsstíll - Það munar um minna
Hinn mínímalíski lífsstíll breiðist út um hinn vestræna heim. Samkvæmt honum á maður aðeins að eiga það sem maður nýtur þess að eiga eða þarf á að halda.
Er heimilið – og kannski lífið sjálft! – fullt af alls kyns hlutum og athöfnum sem engu bæta við lífsgæðin? Taki maður til í lífi sínu, og losi sig við ýmiss konar óþarfa, verður til pláss fyrir meira af því sem maður vill raunverulega hafa.
Áslaug Guðrúnardóttir fréttamaður veitir hér innsýn inn í þessa vinsælu hugmyndafræði og segir skemmtilegar og persónulegar sögur af reynslu sinni af hinum mínímalíska lífsstíl.
Einfaldaðu líf þitt og njóttu þess betur!
Bókin er 160 síður, prentuð í Odda.
Forsíðumynd tók Sigurjón Ragnar.
Myndin er skreytt teikningum eftir Þórarin M. Baldursson.
Umbrot og hönnun: Elin Mejergren.