Moldin man
Gröfumaður kemur óvænt niður á mannabein og skyndilega verður 35 ára gamalt mannshvarf á allra vörum í litlum bæ þar sem allir þekkja alla. Rannsóknarlögreglukona stendur frammi fyrir því flókna verkefni að leysa þessa gátu en sjálf er hún langt gengin með sitt fyrsta barn. Og einhver fylgist grannt með listgreinakennara sem býr yfir leyndarmáli.
Moldin man er fyrsta glæpasaga Þuríðar Óskar Sigurbjörnsdóttur. Hér kveður sér hljóðs nýr og spennandi höfundur sem mikils má vænta af í framtíðinni.
„Spennandi og vel uppbyggð glæpasaga sem rígheldur lesandanum fram á síðustu síðu. Frábær frumraun!“ Jana Hjörvar, Lestrarklefinn
„Þuríður Ósk Sigurbjörnsdóttir er ný rödd í kór glæpasagnahöfunda og svo sannarlega ekki hjáróma. Moldin man er ansi vel uppbyggð og skemmtilega fléttuð saga. Þuríður Ósk skapar trúverðugar og skemmtilegar persónur og sagan er bæði áhugaverð og spennandi.“ Steingerður Steinarsdóttir, Lifðu núna