Eva Björg Ægisdóttir
Marrið í stiganum - ný útgáfa
Fullt verð
4,000 kr
Eva Björg Ægisdóttir sló í gegn bæði heima og erlendis með sinni fyrstu bók, Marrið í stiganum. Bókin hlaut meðal annars Gullrýtinginn í Bretlandi sem frumraun ársins. Sagan er nú endurútgefin í tilefni af sjónvarpsþáttaröðinni Elma.
Ung kona finnst myrt í fjörunni við Akranes. Hin látna reynist hafa búið sem barn í bænum en flutti skyndilega burt ásamt móður sinni. Lögreglukonan Elma, sem er nýflutt á Skagann, rannsakar málið ásamt samstarfsmönnum sínum. Upp á yfirborðið koma ýmis skuggaleg mál úr fortíðinni en Elma þarf líka að takast á við atburði í eigin lífi sem hröktu hana aftur heim á æskuslóðirnar.