Kistan – og fleiri sögur
Ragnar Jónasson

Kistan – og fleiri sögur

Fullt verð 4.800 kr 0 kr

Kistan — og fleiri sögur hefur að geyma safn smásagna eftir Ragnar Jónasson og kemur út í tilefni af stórafmæli hans. Sögurnar átján hafa orðið til á löngum tíma og skrifaðar af ýmsum tilefnum. Allar hafa þær birst erlendis og um helmingur á íslensku í blöðum og tímaritum. Tvær af sögunum skrifaði Ragnar í samstarfi við aðra, Yrsu Sigurðardóttur og Víking Heiðar Ólafsson.

Titilsagan Kistan var tilnefnd til Gullrýtingsins sem besta glæpasmásaga ársins 2026 í Bretlandi. Sögurnar draga vel fram helstu styrkleika Ragnars sem rithöfundar og ráðgátumeistarinn fer á kostum í knöppum sögum með óvæntum endalokum.

„Heimsklassa glæpasagnahöfundur.“ Sunday Times

„Enginn venjulegur rithöfundur.“ The Times

„Einhver besti glæpasagnahöfundur heims nú um stundir.“ Daily Mail


Fleiri bækur