Játning
Ólafur Jóhann Ólafsson

Játning

Fullt verð 3.800 kr Tilboðsverð 6.000 kr

Tveir íslenskir námsmenn, Elísabet og Benedikt, kynnast í Leipzig skömmu fyrir hrun múrsins. Þau fella hugi saman en líf þeirra tekur óvænta stefnu þegar yfirvöld fara að sýna þeim áhuga. Áratugum síðar neyðist Elísabet skyndilega til að minnast þessara löngu liðnu daga sem hún vill síst af öllu rifja upp.

Játning er stórbrotin skáldsaga um ást og minningar, heilindi og svik, fjölskyldusambönd og hverfulleika, um sannleika og lífslygi, og þær ákvarðanir sem við stöndum frammi fyrir á ögurstundum lífsins.

„Lýsir upp skammdegið ... heillandi saga ... hrífandi, tónninn léttur og leikandi og atburðarásin spennandi.“ Sædís Björnsdóttir, Morgunblaðinu


Fleiri bækur