Geirmundar saga heljarskinns
Bergsveinn Birgisson

Geirmundar saga heljarskinns

Fullt verð 3.699 kr 0 kr

«Geirmundr heljarskinn sté nú til slíkra virðinga at svá er sagt at hverr maðr á Vestfjörðum vildi sitja eðr standa svá sem hann fyrir sagði.»

Geirmundur heljarskinn var sagður göfgastur allra landnámsmanna á Íslandi. Þó hefur sögu hans aldrei verið haldið á lofti – fyrr en nú. Enda má segja að hann sé, þegar öllu er á botninn hvolft, 21. aldar maður, þótt hann hafi verið uppi fyrir 1100 árum.

Bergsveinn Birgisson vakti mikla athygli í Noregi árið 2013 fyrir fræðirit sitt um Geirmund heljarskinn sem hann ritaði á norsku og nefndi Svarta víkinginn. Hér er hins vegar loks hægt að lesa stórbrotna sögu Geirmundar sjálfs. Og kominn tími til.

„Meistaraverk.“
– Aftenposten um Svarta víkinginn

 

Bergsveinn Birgisson hefur rannsakað sögu landnámsmannsins Geirmundar heljarskinns um árabil. Hann hefur leitað fanga víða, í fornum ritum, munnmælum og örnefnum, stuðst við fornleifarannsóknir, málfræði og erfðafræði.  

Hér er komin Íslendingasagan sem fékk ekki að vera með.

Bergsveinn Birgisson er höfundur bókanna Landslag er aldrei asnalegt, Handbók um hugarfar kúa og Svar við bréfi Helgu, sem var besta bók ársins 2010 að mati bóksala, hlaut tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna og Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bergsveinn er fræðimaður í Noregi, þar sem hann kennir norrænar miðaldabókmenntir.


Fleiri bækur