Eitt satt orð
Snæbjörn Arngrímsson

Eitt satt orð

Fullt verð 3.800 kr Tilboðsverð 6.000 kr

Á köldu októbersíðdegi sigla Júlía og Gíó, maður hennar, saman út í hinn sögufræga Geirshólma í Hvalfirði vegna verkefnis sem Júlía hefur tekið að sér. Hún snýr hins vegar ein síns liðs þaðan aftur.

Hvað gerðist í kjölfar þess að hún yfirgaf manninn sinn á þessu eyðiskeri? Hvernig getur staðið á því að hann er ekki lengur á eyjunni þegar hún vitjar hans aftur? Og hvernig á hún að skýra það fyrir yfirvöldum að maðurinn virðist horfinn af yfirborði jarðar?


Eitt satt orð er fyrsta spennusaga Snæbjörns Arngrímssonar. Áður hefur hann skrifað þrjár skáldsögur fyrir börn auk þess að hafa hlotið þýðingarverðlaun og verið mikilvirkur bókaútgefandi bæði heima og erlendis.

⭐️⭐️⭐️⭐️ – Steinþór Guðbjartsson, Morgunblaðinu

„Heillaði mig ...  fílaði mjög vel, sagan hélt mér vel. Skemmtilestur.“ – Þorgeir Tryggvason, Kiljunni

„Haraldur er yndislega viðkunnanlegur lögreglumaður.“ – Egill Helgason, Kiljan

„Sagan er heillandi og það eru sögupersónurnar sömuleiðis. Bókin hélt mér forvitinni allt til enda og fléttan lagðist fallega undir lokin.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️1/2 – Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Stundinni 


Fleiri bækur