Mannlaus snekkja siglir inn í Reykjavíkurhöfn. Sjö manns er saknað og Þóra Guðmundsdóttir lögmaður rannsakar hvaða óhugnanlegu atburðir áttu sér stað um borð.
Hér svífur sami andi yfir vötnum og í síðustu bók Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, sem setið hefur vikum saman á metsölulistum heima og erlendis.
„Í hópi fremstu glæpasagnahöfunda Norðurlanda.“ TIMES
„Stenst samanburð við það sem best gerist í glæpasögum samtímans.“ – TIMES LITERARY SUPPLEMENT UM ÖSKU
„Náttúrutalent á sviði glæpasagna.“ – SPIEGEL ONLINE
Brakið er 346 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut um og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu. Bókin er prentuð í Odda.