Ástin, trú og  tilgangur lífsins
Bjartur & Veröld

Ástin, trú og tilgangur lífsins

Fullt verð 14.990 kr 0 kr

Í tilefni af sjötugsafmæli Sigurðar Árna Þórðarsonar þann 23. desember 2023 kemur út undir merkjum Fagurskinnu nú á haustdögum glæsileg stórbók með íhugunum hans, helstu kennidaga ársins. Vandað er mjög til útgáfunnar og býr Ragnar Helgi Ólafsson hana til prentunar. Sigurður Árni hefur starfað sem prestur og fræðimaður og verið einn kunnasti kennimaður Íslendinga síðustu áratugi.

Fólki gefst kostur á að skrá sig á heillaóskaskrá í bókinni til 10. september næstkomandi. Fullt verð bókarinnar er 14.990 en með því að slá inn afsláttarkóðann TABULA þegar þú lýkur kaupunum færðu hana á 11.990 kr. Bæði er hægt að fá bókina senda heim þegar hún kemur út, sækja hana til Bjarts & Veraldar eða á sérstakan útgáfufagnað sem auglýstur verður síðar. Vinsamlegast sendið nafnið sem á að birtast í heillaóskaskránni til pmo@bjartur.is.

Bókin er einkar aðgengileg og er auðvelt að fletta upp í henni. Sigurður Árni flutti prédikanirnar í þessari bók í Neskirkju og Hallgrímskirkju á árunum 2003-23.

Eftir stúdentspróf frá MR hóf hann nám í Noregi en lauk guðfræðinámi á Íslandi frá HÍ. Hann lauk doktorsprófi í guðfræði og hugmyndasögu frá Vanderbiltháskóla í Tennessee í Bandaríkjunum. Í doktorsritgerðinni skrifaði hann um myndmál í trúarhefð Íslendinga. Sigurður Árni hefur starfað sem rektor Skálholtsskóla, fræðslustjóri þjóðgarðsins á Þingvöllum, háskólakennari og verkefnisstjóri guðfræði og þjóðmála á Biskupsstofu. Hann hefur verið prestur í Ásaprestakalli, Staðarfellsprestakalli, Neskirkju og Hallgrímskirkju.

Fagurskinna er systurforlag Bjarts & Veraldar.


Fleiri bækur