Abstrakt – Geómetría á Íslandi 1950–1960
ýmsir

Abstrakt – Geómetría á Íslandi 1950–1960

Fullt verð 11.000 kr 0 kr

Abstrakt – Geómetría á Íslandi 1950–1960 er glæsilegt stórvirki um eitt gróskumesta tímabil íslenskrar listasögu. Í fyrsta sinn voru myndlistamenn okkar samstíga öðrum norrænum og evrópskum kollegum. Fjöldi mynda af einstökum verkum þessara listamanna er að finna í bókinni og fróðlegur texti um listina á tímabilinu sem og listamennina.

Á meðal framvarða þessarar nýju og byltingarkenndu stefnu voru Gerður Helgadóttir, Karl Kvaran, Nína Tryggvadóttir, Svavar Guðnason og Þorvaldur Skúlason, svo nokkur séu nefnd, en sérprent af verkum eftir þessa listamenn fylgja með bókinni.

Höfundur megintexta bókarinnar er Ásdís Ólafsdóttir en Ólafur Kvaran er ritstjóri verksins. Ragnheiður Sigurðardóttir hannaði bókina. Textinn er bæði á ensku og íslensku. Ragnar Th. Sigurðsson myndaði hvert einasta verk sérstaklega fyrir þessa bók.

Stórglæsilegur prentgripur. TAKMARKAÐ UPPLAG.

⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️ Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðinu

„Ein sú glæsilegasta sem gefin hefur verið út um þetta myndlistarfyrirbæri." Aðalsteinn Ingólfsson, Fréttablaðinu

⭐️⭐️⭐️⭐️ Páll Baldvin Baldvinsson, Stundinni


Fleiri bækur