WikiLeaks – Stríðið gegn leyndarhyggju
David Leigh og Luke Harding

WikiLeaks – Stríðið gegn leyndarhyggju

Fullt verð 0 kr 0 kr

Á örskömmum tíma hefur WikiLeaks fengið ráðamenn um allan heim upp á móti sér með afhjúpunum á skjölum sem aldrei áttu að koma fyrir almenningssjónir. Saga uppljóstrunarsíðunnar er dramatísk og ævintýri líkust.

Ísland og Íslendingar koma mjög við sögu WikiLeaks; þegar blaðamenn Guardian reyndu ákaft að ná sambandi við óþekktan Ástrala, Julian Assange, sem átti að sitja á sannkallaðri fjölmiðlabombu var þeim bent á að tala annaðhvort við Kristin Hrafnsson eða Birgittu Jónsdóttur. Og hér á landi var fyrsta sprengja síðunnar búin til birtingar.

Höfundar bókarinnar hafa haft ótakmarkaðan aðgang að öllum helstu persónum og leikendum í þessum sögulegu atburðum. Hér er lesendum veitt einstök innsýn í herbúðir WikiLeaks í stríðinu gegn leyndarhyggju stjórnvalda og er bókin á köflum eins og æsilegasta spennusaga.

 


Fleiri bækur