Þrjár mínútur
Roslund & Hellström

Þrjár mínútur

Fullt verð 2.990 kr 0 kr

Piet Hoffmann er á flótta undan sænskum yfirvöldum og gerist flugumaður bandarískra stjórnvalda í kólumbísku kókaínmafíunni. Honum tekst að komast til metorða í hrottalegum heimi glæpamanna sem svífast einskis. Þegar háttsettur bandarískur stjórnmálamaður er tekinn í gíslingu lendir Hoffmann milli steins og sleggju – báðir aðilar vilja hann feigan. Sænski lögreglumaðurinn Ewert Grens er sendur til Kólumbíu til að reyna að ná sambandi við Hoffmann sem hefur ákveðið að taka málin í sínar hendur.

Háspennutryllir úr smiðju þeirra Roslund & Hellströms sem grípur lesandann heljartökum og sleppir honum ekki fyrr en á síðustu síðu.

„Hröð og mögnuð spennusaga, eins og að horfa á æsispennandi kvikmynd.“ - Dagens Nyheter

„Í senn sérlega haganlega samansett glæpasaga og pólitískur spennutryllir.“ – Borås Tidning

„Spennandi saga um ofsóttasta mann í heimi í kókaínfrumskógum Kólumbíu.“ – Sveriges Radio, P4

„Skyldulensning sumarsins, eða kannski bara einfaldlega skyldulesning fyrir alla.“ – Skånska Dagbladet

Þrjár mínútur er 599 blaðsíður að lengd. Sigurður Þór Salvarsson þýddi. Jón Ásgeir hannaði bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson sá um umbrot. Bókin er prentuð hjá Nørhaven, Danmörku.


Fleiri bækur