Snjór í paradís
Ólafur Jóhann Ólafsson

Snjór í paradís

Fullt verð 4.000 kr Tilboðsverð 6.300 kr

Meginstef þessarar áhrifamiklu bókar eru nánustu sambönd fólks; hjóna, foreldra og barna, elskhuga og vina; og hvernig hið leyndasta í lífi sérhvers manns, það sem hugur einn veit, getur breytt öllu komi það upp á yfirborðið.

Snjór í paradís er mögnuð bók um ást og von, blekkingu og afhjúpun, hliðarspor og heiðarleika.

Í bókinni er fjallað um ástríður og þráhyggju, djúpa ást í meinum og fengist við þær tilvistarspurningar sem allir glíma við: Er ást skilyrðislaus eða hvar liggja mörkin? Hversu lengi getur fortíðin komið í bakið á okkur? Skipta blóðbönd máli?

Ólafur Jóhann Ólafsson hefur lengi verið einn ástsælasti rihöfundur þjóðarinnar og hafa bækur hans hrifið lesendur heima og erlendis. Baltasar Kormákur vinnur nú að kvikmynd eftir skáldsögu hans, Snertingu sem tilnefnd var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Ráðgert er að frumsýna myndina árið 2024. Ólafur Jóhann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006, O. Henry verðlaunin árið 2008 og hefur auk þess hlotið tilnefningu til IMPAC­verðlaunanna og Frank O’Connor­verðlaunanna.

⭐️⭐️⭐️⭐️ Kristján Jóhann Jónsson, Morgunblaðið

„Sterk bók, maður sogast inn í andrúmsloft sagnanna. Ólafur gerir þetta mjög vel.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljan

„Harla gott, falleg kyrrð í textanum en átök undir niðri.“ Egill Helgason, Kiljan

„Formið leikur í höndum höfundar.“ Þorgeir Tryggvason, Kiljan

„Ein af bestu bókum Ólafs Jóhanns. Svakalega skemmtileg. Hvet fólk til að lesa hana.“ Gísli Marteinn Baldursson

„Auðugar sögur og örlátar á umhugsunarefni. Sögur sem búa lengi með lesanda.“ Silja Aðalsteinsdóttir

„Hver saga tekur mann inn í nýjan og spennandi heim. Sterkt en ljúft andrúmsloft í hverri sögu, þær  eru mildar á yfirborðinu en undirtónninn er mjög sterkur. ... Nautn að lesa.“ Sirrý Arnardóttir

 



Fleiri bækur