Ploey – You never fly alone
Ploey – You never fly alone
Bjartur

Ploey – You never fly alone

Fullt verð 2.990 kr 0 kr

Ploey – You never fly alone er ensk útgáfa bókarinnar Lói – Þú flýgur aldrei einn. Óvænt atvik verða til þess að lóunginn Lói verður eftir þegar langbesta vinkona hans, Lóa Vera, flýgur suður um höf með hinum farfuglunum um haustið. Lói er staðráðinn í að berjast fyrir lífi sínu og hitta Lóu Veru aftur um vorið. Hann lendir í ýmsum hremmingum og þarf að kljást við ótal ógnir; fálkann Skugga og fleiri rándýr sem vilja koma honum fyrir kattarnef og ekki síst ískaldan heimskautaveturinn. Með hjálp nýrra vina tekst honum hið ómögulega – og meira en það!

Í framleiðslu er alþjóðleg stórmynd eftir þessari spennandi og hugljúfu sögu. Hún kemur úr smiðju þeirra sömu og gerðu Þór – Hetjur Valhallar sem er mest sótta íslenska kvikmyndin utan landsteinanna. 

Ploey – You never fly alone er 64 blaðsíður að lengd. Bókin er prentuð í Slóveníu.

 


Fleiri bækur