Konan sem elskaði fossinn - kilja
Eyrún Ingadóttir

Konan sem elskaði fossinn - kilja

Fullt verð 3.500 kr 0 kr

Sigríður í Brattholti (1871–1957) er einn kunnasti náttúruverndarsinni Íslandssögunnar. Hún bjó alla sína ævi í nágrenni við Gullfoss og þegar upp komu hugmyndir um að virkja fossinn hóf hún ein og óstudd baráttu gegn þessum áformum, baráttu fyrir málstað sem hún var tilbúin að fórna lífinu fyrir.

Um áratugaskeið talaði Sigríður máli fossins og vildi að hann fengi að „flæða af hamrinum ... óhaggaður af höndum manna“. Í fyrstu var það fyrir daufum eyrum en smám saman jókst samúðin með málstað hennar. Samhliða þessu þurfti Sigríður að glíma við erfiðleika á heimili sínu og í einkalífi.


Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur hefur um árabil rannsakað ævi og baráttu Sigríðar í Brattholti. Árið 2012 sendi hún frá sér sögulegu skáldsöguna Ljósmóðirin sem gagnrýnendur kölluðu „magnaða örlagasögu“,var ein af söluhæstu bókum ársins og var að auki tilnefnd til Fjöruverðlaunanna.
Konan sem elskaði fossinn er stórbrotin baráttusaga sem lætur engan ósnortinn.


„Það fer vel að skila sögu Sigríðar í formi sögulegrar skáldsögu þar sem höfundur skreytir eyðurnar, fegrar lýsingar og náttúruupplifun á máta sem unun er að lesa.“ Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor

Frábær lesning um merka baráttukonu. Hér er mikil saga sögð án málalenginga. Saga af miklum átökum sem bæði fara fram fyrir opnum tjöldum á landsvísu og einnig innan sveitar og innan veggja heimilisins í Brattholti. Höfundur nær fram trúverðugri mynd af samfélagi sem löngu er horfið. Þetta er saga af refshætti og svikum en einnig af óvæntum sigrum. ... Þetta er saga sem er erfitt að leggja frá sér og skilur eftir þenkingar um hugsjónamanninn sem berst einn við ofurefli. Bók um náttúruvernd, sögu Biskupstungna og um sjálfan Gullfoss.“ Bjarni Harðarson, rithöfundur og bóksali

 


Fleiri bækur