Hrakningar á heiðavegum
Hrakningar á heiðavegum
Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson

Hrakningar á heiðavegum

Fullt verð 2.990 kr 0 kr

Hið rómaða stórvirki Hrakningar og heiðavegir eftir þá Pálma Hannesson og Jón Eyþórsson er fyrir löngu orðið sígilt verk um öræfi Íslands og ótrúlega baráttu landsmanna við óblíða náttúru. Bækurnar hafa verið ófáanlegar um langt árabil en nú hefur verið safnað saman úrvali af hrakningasögum úr verkinu.

Hér er að finna magnaðar frásagnir af hrakningum manna víðs vegar á landinu og frá ýmsum tímum. Í sumum tilfellum eru þetta sögur af hreystimennum, oftar þó af venjulegu fólki – körlum og konum – sem þurfti að takast á við vægðarlaus náttúruöflin fjarri mannabyggð.

Grípandi og átakanlegar frásagnir sem kalla fram ískaldan spennuhroll, undrun og aðdáun.

Hrakningar á heiðavegum er 282 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson sá um umbrot og hönnun innsíðna, Jón Ásgeir hannaði kápuna.

„Þjóðlegur fróðleikur eins og hann gerist æsilegastur.“ Egill Helgason í Kiljunni

„Maður lifir sig gríðarlega inn í þetta, ég komst við á tveimur stöðum.“ Kolbrún Bergþórsdótti, Kiljunni

„Hér er að finna hreint magnaða lesningu af grimmri náttúru íslenskra öræfa (…) án efa með því besta og merkasta úr menningar- og útgáfusögu Íslendinga.“ Björgvin G. Sigurðsson, pressan.is

****1/2

„Útgáfa bókarinnar Hrakningar á heiðavegum er þarfaverk.“ Reynir Traustason, DV


Fleiri bækur