Rof - kilja
Ragnar Jónasson

Rof - kilja

Fullt verð 3.990 kr 0 kr

Árið 1955 flytja tvenn ung hjón til Héðinsfjarðar sem farinn er í eyði. Dvölin fær snöggan endi þegar önnur kvennanna deyr með dularfullum hætti. Hálfri öld síðar finnst gömul ljósmynd sem bendir til þess að hjónin hafi ekki verið ein í firðinum. 

Bækur Ragnars hafa komið út víða um heim, hlotið viðurkenningar og frábæra dóma og setið í efstu sætum á metsölulistum. Unnið er að gerð breskra sjónvarpsþátta sem byggjast á bókum Ragnars. 

 **** „Á örskömmum tíma er Ragnar Jónasson orðinn einhver eftirtektarverðasti glæpasagnahöfundur landsins; hæfilega jarðbundinn, ákaflega vel máli farinn og hugmyndaríkur. Með sama áframhaldi eru engin takmörk fyrir því hve langt þessi snjalli höfundur getur náð á alþjóðavísu.“ - pressan.is

„Bækur Ragnars hafa blásið nýju lífi í norrænu glæpasöguna.“ – Sunday Express

„Bækur Ragnars Jónassonar verðskulda að standa við hliðina á verkum Yrsu Sigurðardóttur og Arnaldar Indriðasonar sem bestu íslensku glæpasögurnar.“ – Washington Post

Rof er 312 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Ragnar Helgi Ólafsson hannaði kápu. Bókin er prentuð í Danmörku.


Fleiri bækur