Hin útvalda
Snæbjörn Arngrímsson

Hin útvalda

Fullt verð 4.000 kr Tilboðsverð 6.300 kr

Lögreglumaðurinn Haraldur er sendur til starfa í smábæ á Austurlandi í lok tíunda áratugarins til þess að byggja sig upp eftir skipbrot í einkalífi. Áður en varir fara sérkennilegir hlutir að gerast þarna í fásinninu – og síðan hverfur ungur maður …

Pilturinn reynist hafa verið alræmdur í bænum fyrir smáglæpi og ögrandi framkomu. Skyndilega liggja flestir íbúarnir undir grun um að standa að baki hinum dularfullu atburðum. Haraldur lendir fljótlega í öngstræti með rannsóknina og þetta furðulega mál virðist síður en svo auðleysanlegt.

Snæbjörn Arngrímsson vakti mikla athygli með fyrstu spennusögu sinni, Eitt satt orð, árið 2022 en hún kemur nú út víða erlendis. Hann fylgir henni hér eftir með bráðskemmtilegri og spennandi bók með fjölda skrautlegra persóna. Snæbjörn hefur unnið til verðlauna fyrir barnabækur sínar og þýðingar.

„Hafði mjög gaman af bókinni, Haraldur er mjög athyglisverður lögreglumaður sem og fólkið í þorpinu.“ Sunna Dís Másdóttir, Kiljan

„Vel unnin og bráðskemmtileg sakamálasaga ... Snæbirni tekst einstaklega vel að skapa trúverðugar og spennandi persónur. Lesandanum er ekki sama um þetta fólk og óskar því alls hins besta. Jafnvel þeim breyskustu meðal þorpsbúa er ekki alls varnað og hægt að harma örlög sumra. Sagan er mjög vel skrifuð og þetta er áhugaverð saga um mannlegt eðli fremur en glæp.“ Lifðu núna


"Haraldur er yndislega viðkunnanlegur lögreglumaður." Egill Helgason, Kiljunni ( um Eitt satt orð)

„Sagan er heillandi og það eru sögupersónurnar sömuleiðis. Bókin hélt mér forvitinni allt til enda og fléttan lagðist fallega undir lokin.“  Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Stundinni (um Eitt satt orð)

„Heillaði mig ... fílaði mjög vel, sagan hélt mér vel. Skemmtilestur.“  Þorgeir Tryggvason, Kiljunni (um Eitt satt orð)


Fleiri bækur