Yrsa Sigurðardóttir
        
        
          
          
          
          
              
          
          
        
      
    DNA
            Fullt verð
            
              3.990 kr
            
            
              
              
            
          
          
          
            Ung kona er myrt á hryllilegan hátt á heimili sínu að nóttu til. Eina vitnið er sjö ára dóttir hennar. Skömmu síðar lætur morðinginn aftur til skarar skríða. Radíóamatör fær sérkennileg skilaboð á öldum ljósvakans sem tengja hann við bæði fórnarlömbin. Þó þekkir hann hvorugt þeirra.
Yrsa Sigurðardóttir bregst ekki lesendum sínum með þessari mögnuðu glæpasögu!
„Ef þú vilt láta halda fyrir þér vöku, er óhætt að mæla með bókum Yrsu Sigurðardóttur.“ Financial Times
„Spennusögur Yrsu Sigurðardóttur verða bara betri og betri.“ Sunday Telegraph
„Verk Yrsu standast samanburð við það sem best gerist í glæpasögum samtímans, hvar sem er í heiminum.“ Times Literary Supplement