Sara Blædel
        
        
          
          
          
          
              
          
          
        
      
    Dauðaslóðin
            Fullt verð
            
              2.499 kr
            
            
              
              
            
          
          
          
            Dauðaslóðin er grasi gróinn stígur í skóginum við Hróarskeldu. Áður var hinum deyjandi ekið eftir þessum stíg út að stóru eikartré þar sem guðunum var fórnað blóði, til að auðvelda þeim för sína yfir í annan heim.
Nú bendir allt til þess að umferð um dauðaslóðina sé hafin á ný. Louise Rick – yfirmaður mannshvarfadeildarinnar hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn – kemst að því þegar leit er hafin að dreng sem felur sig í skóginum rétt hjá æskuslóðum hennar.
Rannsóknin varpar ljósi á dökkar hliðar samfélagsins en um leið verður hún Louise tilefni til að gera endanlega upp við fortíðina.
Ingunn Snædal þýddi.