Roslund & Hellström
        
        
          
          
          
          
              
          
          
        
      
    Box 21
            Fullt verð
            
              990 kr
            
            
              
              
            
          
          
          
            Box 21 er áhrifamikil saga um skuggahliðar mannlegs samfélags og lesandinn stendur frammi fyrir áleitnum spurningum: Hvers vegna á mansal sér stað? Er einhvern tíma réttlætanlegt að fórnarlamb taki lögin í sínar hendur? Hversu langt er hægt að ganga í nafni vináttunnar? Er það skýlaus krafa að sannleikurinn verði alltaf að koma fram?
Ung vændiskona finnst húðstrýkt í íbúð þar sem henni hefur verið haldið nauðugri ásamt annarri konu. Hún er flutt á sjúkrahús og óvæntir atburðir gerast í kjölfarið
Á þessu sama sjúkrahúsi liggur fársjúkur ungur fíkill sem hefur verið staðinn að því að blanda þvottaefni saman við amfetamín og selja valdamiklir aðilar í undirheimum Stokkhólmsborgar hyggja á hefnd
Örlög þessara tveggja persóna fléttast saman á eftirminnilegan hátt í rannsókn Ewert Gren lögregluforingja og félaga hans, Sven Sundkvist rannsóknarlögreglumanns.