Ástarsögur íslenskra karla
Bjarni Þorsteinsson, María Lilja Þrastardóttir, Rósa Björk Bergþórsdóttir

Ástarsögur íslenskra karla

Fullt verð 2.300 kr 0 kr

 

Það hefur ekki verið til siðs meðal íslenskra karla að segja sögur af ástum sínum, hvorki öðrum körlum né konum. Það er einna helst að þeir hafi stært sig af afrekum í bólförum og þá yfirleitt við kynbræður sína. Nú hefur í fyrsta sinn í sögu íslenskra bókmennta verið safnað saman ástarsögum karla þar sem þeir segja sögur sínar.

Sögurnar eru af öllu tagi, úr lífi ungra manna og eldri, gagnkynhneigðra, samkynhneigðra og kynsegins. Sumar eru rómantískar, aðrar dálítið groddalegar, sumar fyndnar, aðrar sárar og sorglegar. En í öllum sögunum er ástin yfir og allt um kring í öllum sínum margbreytileika.

María Lilja Þrastardóttir, Rósa Björk Bergþórsdóttir og Bjarni Þorsteinsson söfnuðu sögunum saman og bjuggu þær til útgáfu í samráði við karlana sem hér segja frá.

Hér er einstakt tækifæri til að skyggnast inn í huga karla á Íslandi og sjá hvernig ástin birtist í fjölbreyttu litrófi karlmennskunnar.


Fleiri bækur