Drekinn innra með mér
Laila M. Arnþórsdóttir og Svafa Björg Einarsdóttir

Drekinn innra með mér

Fullt verð 2.999 kr Tilboðsverð 3.999 kr

Lítil stúlka kemst að því einn daginn að innra með henni býr dreki sem er besta skinn. Hann kennir henni að þekkja tilfinningar sínar og hvernig hún getur brugðist við þeim. Öll búum við yfir allskonar tilfinningum - til dæmis gleði, reiði, spennu og depurð - og allar þessar tilfinningar eiga rétt á sér. Galdurinn er að læra að þekkja þær og hvernig við getum brugiðist við þeim.

Fjölmörg börn kannast við þessa fallegu sögu um drekann innra  með okkur sem nú er komin út á bók. Samnefndir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónlist eftir Elínu Gunnlaugsdóttur voru haldnir í Eldborgarsal Hörpu við miklar vinsældir barna á leikskólaaldri og í fyrstu tveimur bekkjum grunnskólans.