Ævisaga
Geir H. Haarde

Ævisaga

Fullt verð 8.000 kr 0 kr

„Fáum dögum síðar skrifar Steindór afi minn mömmu í Noregi að amma mín hafi loks ákveðið að segja mér tíðindin og hann sé viss um að það hafi verið eins vel gert og hægt var miðað við aðstæður.“

Í opinskárri ævisögu sinni veitir Geir einstaka innsýn í baksvið stjórnmálanna, meðal annars mánuðina örlagaríku haustið 2008, og er óhætt að segja að þar komi ýmislegt á óvart. Hann fjallar einnig ítarlega og gagnrýnið um landsdómsmálið.

Geir skrifar af einlægni um einkalíf sitt, uppvöxt í Vesturbæ Reykjavíkur, MR og námsár í Bandaríkjunum en einnig dramatíska atburði úr æsku sem hann hefur aldrei rætt opinberlega áður, þar á meðal viðkvæm fjölskyldumál.

Geir styðst við margvísleg gögn úr sínu einkasafni – sendibréf, tölvupósta, símskeyti, smáskilaboð, minnisblöð og dagbækur en einnig myndir. Fæst af því hefur áður komið fyrir almenningssjónir.

⭐️⭐️⭐️⭐️ Sölvi Sveinsson, Morgunblaðinu

„Virkilega spennandi ... rennur ofboðslega vel ... óhætt að mæla með ... Heimir Már Pétursson, Stöð 2

„Ýtarleg og vandlega unnin ... Það ber með sér karaktereinkenni auðmýktar sem sjaldséð er í íslenskri og jafnvel alþjóðlegri pólitík og gerir söguna áhugaverða. ... nauðsynleg sagnfræðileg heimild ... vönduð, skemmtileg.“ Ásgeir Brynjar Torfason, Heimilidinni

„Sætir tíðindum ... vönduð að allri gerð.“ Ólafur Arnarson, hringbraut.is


Fleiri bækur