Frábært hár
Íris Sveinsdóttir

Frábært hár

Fullt verð 990 kr 0 kr

Í þessari glæsilegu og aðgengilegu bók eru upplýsingar af ýmsu tagi um hár og hvernig hægt er að sinna hárinu á sem bestan hátt. Megináherslan er þó lögð á flottar hárgreiðslur, hér er að finna allt allt frá zulu hnútakrullum til brúðargreiðslu à la Audrey Hepurn. Og fyrir þá sem hafa lítinn tíma eða eru að flýta sér eru frábærar partígreiðslur á 5–10 mínútum málið – að ógleymdri neyðargreiðslunni. Í bókinni eru á þriðja hundrað skýringamynda sem gera það leik einn að útbúa stórglæsilegar hárgreiðslur á stuttum tíma.

 Íris Sveinsdóttir hefur í mörg ár unnið við að kenna hárgreiðslu heima og erlendis og hefur mikla reynslu í að miðla upplýsingum um hár og hárgreiðslur. Þá hefur Íris bæði verið í landsliði Íslands og Þýskalands í hársnyrtingu.

 „Þessi bók er best geymda fegurðarleyndarmálið mitt.“ Tobba Marinós

 „Glæsileg, fræðandi og aðgengileg.“ Brósi hárgreiðslumeistari

 Frábært hár er 100 blaðsíður að lengd. Lóa Auðnsdóttir og Birna Geirfinnsdóttir hönnuðu innsíður og kápu.


Fleiri bækur